Mannlíf

Ungmenni vikunnar: Myndi ekki nenna að vera á eyðieyju
Laugardagur 16. mars 2024 kl. 06:04

Ungmenni vikunnar: Myndi ekki nenna að vera á eyðieyju

Ungmenni vikunnar:
Nafn: Gunnar Karl Þorgeirsson.
Aldur: 15.
Bekkur og skóli: 10. bekkur Sandgerðisskóla.
Áhugamál: Fótbolti og að baka.

Gunnar Karl Þorgeirsson er fimmtán ára nemandi í Sandgerðisskóla. Hann æfir fótbolta og finnst líklegast að hann fari í FS að loknum grunnskóla. Gunnar Karl er ungmenni vikunnar.

Hvert er skemmtilegasta fagið? Íþróttir.

Hver í skólanum þínum er líklegur til að verða frægur og hvers vegna? Örugglega Gunnlaugur út af fótboltanum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Skemmtileg saga úr skólanum: Mér dettur ekki nein sérstök í hug.

Hver er fyndnastur í skólanum? Ég.

Hvert er uppáhaldslagið þitt? Ég veit það ekki alveg en ég hlusta mikið á íslensk lög.

Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? Uppáhaldsmaturinn minn er taco.

Hver er uppáhaldsbíómyndin þín? Grown Ups er uppáhaldsmyndin mín.

Hvaða þrjá hluti myndir þú taka með þér á eyðieyju og hvers vegna? Ég myndi taka með mér einn árabát og tvær árar af því ég myndi ekki nenna að vera á eyðieyju.

Hver er þinn helsti kostur? Ég er skemmtilegur.

Ef þú gætir valið þér einn ofurkraft til að vera með restina af ævinni, hvað myndir þú velja? Ég myndi velja það að geta flogið, til að ég gæti ferðast frítt.

Hvaða eiginleiki finnst þér bestur í fari fólks? Heiðarleiki og kurteisi.

Hvað langar þig að gera eftir grunnskóla? Ég ætla að fara í einhvern framhaldsskóla, örugglega FS.

Stundar þú íþróttir eða aðrar tómstundir? Ég æfi fótbolta.

Ef þú ættir að lýsa sjálfum þér í einu orði hvaða orð væri það? Frábær.