Mannlíf

Skáldasuð – lítil ljóðahátíð á Suðurnesjum
Þriðjudagur 5. mars 2024 kl. 11:16

Skáldasuð – lítil ljóðahátíð á Suðurnesjum

Sýning, upplestrar og smiðjur dagana 7. - 21. mars

Skáldasuð er ný ljóðahátíð sem haldin verður í Reykjanesbæ dagana 7. -21. mars nk. Þessi litla ljóðahátíð er hugarfóstur myndlistarmannsins Gunnhildar Þórðardóttur sem er einnig ljóðskáld. Hátíðin hefst fimmtudag 7. mars á Bókasafni Reykjanesbæjar með opnun á myndverkum Gunnhildar tengdar ljóðaverkefnum hennar en sýningin nefnist Kjarni þar sem listamaðurinn sýnir eins konar kjarna af sínum verkum en höfundur vinnur jafnt í texta sem listaverkum bæði tví – og þrívíðum. Á seinna upplestrarkvöldinu 14. mars nk. Þar munu fjögur ljóðskáld koma fram.

Á sama tíma hefst fyrsti upplestur Skáldasuðs þar sem Gunnhildur mun einnig stíga á stokk ásamt fríðum hópi ljóðskálda þeim Antoni Helga Jónssyni, Valdimar Tómassyni, Guðmundi Brynjólfssyni og Ólafi Sveini Jóhannssyni. 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Á seinna upplestrarkvöldinu 14. mars nk. munu ljóðaskáldin Draumey Aradóttir, Eyrún Ósk Jónsdóttir, Eygló Jónsdóttir og Guðmundur Magnússon koma fram. Bæði upplestrarkvöldin hefjast kl. 17 í Bókasafni Reykjanesbæjar. 

Laugardag 16. mars kl. 12-14 verður svo haldin ljóðasmiðja fyrir börn og ungmenni en hátíðin er hugsuð fyrir börn jafnt sem fullorðna. Ljóðasmiðjan er í samvinnu við Reykjavíkurdætur þær Steinunni og Ragnhildi en það þarft vart að kynna þær þar sem Reykjavíkurdætur komu eins og stormsveipur inn í íslenskt tónlistarlíf fyrir nokkrum árum. Þær Ragga sem er frá Keflavík og Steinunn hafa unnið margar ljóðasmiðjur með grunnskólabörnum og nú munu þær koma til Keflavíkur. Ragga Holm er menntaður tómstunda- og félagsmálafræðingur og hefur haldið margskonar námskeið fyrir grunnskólabörn, unglingadeildir og menntaskóla. Steinunn hefur síðan 2011 starfað sem tónlistarkona og danskennari.

Á sama tíma verða til sýnis ljóð í leiðinni í Sundmiðstöð Keflavíkur, ljóðskáld sem tóku þátt í öðru verkefni listamannsins Gunnhildar Þórðardóttur Skáldaskápur, þar sem ný ljóðskáld frá Suðurnesjum bókastaflega komu út úr skápnum sem ljóðskáld. Það verkefni stóð yfir í hálft ár 2021 -22 og í hverju bókasafni á Suðurnesjum var kynnt ljóðskáld frá viðkomandi stað. En einnig koma við sögu þekkt skáld frá Suðurnesjum s.s. Erlingur Jónsson, Kristinn Reyr, Þorsteinn Eggertsson og Sigvaldi Kaldalóns.

Gunnhildur Þórðardóttir er með MA í liststjórnun (2006), tvíhliða BA nám sagnfræði (listasögu) og fagurlistum frá Listaháskólanum í Cambridge UK (2003) og viðbótardiplómanám í listkennslu bæði fyrir grunn - og framhaldsskóla frá Listaháskóla Íslands (2019). Hún hefur starfað við kennslu síðan 2014 og starfað í rúm tíu ár fyrir listasöfn bæði á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Hún hefur verið virkur myndlistarmaður í tuttugu ár og unnið trúnaðarstörf fyrir Samband íslenskra myndlistarmanna (SÍM) og félagið Íslensk grafík.