JS Campers
JS Campers

Íþróttir

Yfirlýsing frá Ungmennafélagi Njarðvíkur
Samsett mynd af bréfi frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum til formanns UMFN þar sem honum er tilkynnt að málinu hafi verið vísað frá og viðtalinu sem um ræðir og birtist í 9. tbl. Víkurfrétta 2024.
Föstudagur 15. mars 2024 kl. 06:00

Yfirlýsing frá Ungmennafélagi Njarðvíkur

Að gefnu tilefni. Við hörmum en um leið afsölum okkur ábyrgð á þeirri umfjöllun sem Ungmennafélag Njarðvíkur hefur fengið í fjölmiðlum undanfarna daga, vikur og mánuði.

Hingað til hefur þessum ásökunum ekki verið svarað á neinn hátt opinberlega en stjórn Ungmennafélags Njarðvíkur telur sig knúna til að svara viðtali sem birtist í Víkurfréttum 28. febrúar síðastliðinn.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Þar er formaður félagsins sakaður um tilraun til fjárdráttar og viðmælandi segist vera búinn að leggja fram kæru á hendur honum.

Kæra á hendur formanns Ungmennafélags Njarðvíkur kemur formlega á borð lögreglu fimmtudaginn 29. febrúar.

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum vísar kærunni frá föstudaginn 1. mars vegna þess að ekki þótti tilefni til að hefja lögreglurannsókn á grundvelli kærunnar.

Aðalstjórn Ungmennafélags Njarðvíkur nýtur fulls stuðnings allra deilda sinna í þessum málum sem öðrum.

Aðalstjórn Ungmennafélags Njarðvíkur
Körfuknattleiksdeild UMFN
Knattspyrnudeild UMFN
Þríþrautardeild UMFN
Lyftingadeild UMFN
Sunddeild UMFN
Rafíþróttardeild UMFN