Íþróttir

Yfirlýsing frá körfuknattleiksdeild UMFG vegna leikbanns Deandre Kane
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
föstudaginn 12. apríl 2024 kl. 17:13

Yfirlýsing frá körfuknattleiksdeild UMFG vegna leikbanns Deandre Kane

Deandre Kane, einn erlendu leikmanna karlaliðs Grindavíkur, hefur verið úrskurðaður í eins leiks bann. KKÍ hafði dæmt hann í tveggja leikja bann en breytti eftir mótmæli Grindvíkinga, sem eru ekki sáttir við vinnubrögð KKÍ.

Þess ber að geta að Keflvíkingurinn Kristinn Óskarsson var einn dómara umrædds leiks. Kom mörgum á óvart að hann og annar dómari úr þeim leik skyldu dæma fyrsta leik Grindavíkur í gær.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024


Yfirlýsing frá körfuknattleiksdeild UMFG varðandi leikbann DeAndre Kane

Körfuknattleiksdeild UMFG gerir alvarlegar athugasemdir við vinnubrögð aga- og úrskurðarnefndar KKÍ, sem og skrifstofu sambandsins, vegna atviks sem upp kom í leik Grindavíkur og Stjörnunnar þann 28. mars.

Hefði málið hlotið eðlilegan framgang hefði bannið tekið gildi í síðasta deildarleik UMFG, en þess í stað framlengist það fram í úrslitakeppni. Aga- og úrskurðanefnd hefur að einhverju leyti reynt að klóra yfir mistök sín og stytt bannið í einn leik en betur má ef duga skal.

Kallaði nefndin eftir sjónarmiðum UMFG þriðjudaginn 30. mars en var það ákall sent á rangt netfang og svo ítrekað aftur á rangt netfang 2. apríl. Þann 8. apríl barst UMFG loks tölvupóstur á rétt netfang frá skrifstofu KKÍ með úrskurði í agamáli 41/2023-2024 þar sem leikmanni nr. 7 í liði UMFG, DeAndre Kane, var gert að sæta tveggja leikja banni sem taki gildi þá þegar. Úrskurður þessi er ódagsettur en samkvæmt skrifstofu KKÍ var hann kveðinn upp að morgni mánudagsins 8. apríl. Hefur hann af einhverjum sökum ekki enn verið birtur á vefsíðu sambandsins.

Það er margt við þessa tímalínu atburða að athuga, fyrir utan þá grófu yfirsjón að senda mikilvæga tölvupósta ítrekað á rangt netfang. Alla jafna kveður aganefnd upp úrskurði á miðvikudögum og skulu þeir birtir á heimasíðu KKÍ. Úrskurðir nefndarinnar varðandi agamál taka almennt gildi klukkan 12:00 á hádegi næsta fimmtudag frá birtingu þeirra. Það er því með öllu óskiljanlegt af hverju aga- og úrskurðarnefnd tók meðvitaða ákvörðun um að draga meðferð málsins fram yfir miðvikudaginn 3. apríl. Nefndin hafði undir höndum atvikaskýrslu dómara og mátti vera fullljóst að málinu kynni að lykta með leikbanni kæmu ekki fram önnur gögn sem leitt gætu til annarrar niðurstöðu.

Þá gerir UMFG einnig alvarlegar athugasemdir við að nefndin hafi byggt úrskurðinn á gögnum sem aflað var frá dómurum leiksins 2. apríl en voru aldrei send til félagsins til að taka afstöðu til og því gat félagið ekki brugðist við þeim í greinagerð sinni og andmælum. Einng þykir okkur skjóta nokkuð skökku við að úrskurðurinn sé byggður á fyrri úrskurði í sama máli sem hefur verið felldur úr gildi.

Efnislega er stjórn körfuknattleiksdeildar Grindavíkur ekki sammála atvikalýsingu dómara leiksins. Þar segir m.a. að leikmaður hafi gengið ógnandi að dómara í lok leiks en myndbandsupptaka sýnir að leiktíminn var ekki runninn út og leikmaðurinn virtist nokkuð yfirvegaður í mótmælum sínum.

Í vetur hafa komið upp ófá atvik þar sem leikmenn hafa arkað mjög ákveðið í átt að dómurum, verið mjög æstir og látið hávær orð falla án nokkurra afleiðinga. Það gefur augaleið að leikmaður Grindavíkur naut ekki sannmælis í atvikaskýrslu dómara eftir þennan leik þegar framkoma hans er borin saman við þessi atvik.

Er það von körfuknattleiksdeildar UMFG að aga- og úrskurðarnefnd KKÍ og skrifstofa sambandsins muni bæta sín vinnubrögð og fagmennsku eftirleiðis.

Kkd. UMFG

Hægt er að sjá umrætt atvik í spilaranum.