Karlakórinn
Karlakórinn

Íþróttir

Markaskorarinn Rúnar Ingi í Keflavík
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
föstudaginn 19. apríl 2024 kl. 13:28

Markaskorarinn Rúnar Ingi í Keflavík

Knattspyrnudeild Keflavíkur hefur fengið liðsauka fyrir átökin í Lengjudeildinni í sumar en markaskorarinn Rúnar Ingi Eysteinsson er genginn til liðs við félagið.

Rúnar Ingi er 21 árs gamall öflugur framherji sem kemur Augnabliki þar sem hann hefur skorað 27 mörk í 42 leikjum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Rúnar er styrkir framlínu Keflavíkur sem mætir Breiðabliki í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla næstkomandi fimmtudag á gervigrasinu við Nettóhöllina.