Karlakórinn
Karlakórinn

Fréttir

Átta Grindvíkingar fengu heiðursviðurkenningar
Handhafar heiðursviðurkenninga ásamt forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni. Ljósmyndir: Ingibergur Þór Jónasson
Laugardagur 20. apríl 2024 kl. 06:09

Átta Grindvíkingar fengu heiðursviðurkenningar

Sjálfboðaliðar heiðraðir með listaverki | „Við þurfum að undirbúa nýjar kynslóðir undir komandi verkefni þar sem sjálfboðastarf verður áfram mikilvægt“

Átta Grindvíkingum voru afhentar heiðursviðurkenningar í tilefni af 50 ára kaupstaðarafmæli Grindavíkurbæjar á hátíðarfundi bæjarstjórnar Grindavíkur þann 10. apríl síðastliðinn. Öll hafa þau skilað umfangsmiklu og mikilvægu framlagi til samfélagsins í Grindavík og verið öðrum til fyrirmyndar, eins og fram kom við athöfnina.

Þau sem hlutu viðurkenningarnar eru:

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024
  • Aðalgeir Georg Daði Johansen hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi störf í þágu menningarmála í Grindavík.
  • Birna Bjarnadóttir hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi störf í þágu mannúðar- og menningarmála í Grindavík.
  • Björn Birgisson hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi störf í þágu menningarmála í Grindavík.
  • Guðfinna Bogadóttir hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi störf í þágu mannúðar- og menningarmála í Grindavík.
  • Gunnar Tómasson hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi störf í þágu atvinnu-, félags- og menningarmála í Grindavík.
  • Jónas Þórhallsson hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi störf í þágu íþróttamála í Grindavík.
  • Kristín Elísabet Pálsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi störf í þágu barna- og menningarmála í Grindavík.
  • Stefanía Ólafsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi störf í þágu fræðslu- og uppeldismála í Grindavík.

Á vef Grindavíkurbæjar má finna nánari upplýsingar um þau sem hlutu heiðursviðurkenningu og störf þeirra í þágu samfélagsins í Grindavík.

Á hátíðarfundinum var einnig tilkynnt að bæjarstjórn hafi ákveðið að kaupa listaverk til áminningar um mikilvægt framlag sjálfboðaliða til uppbyggingar samfélagsins í Grindavík í fortíð, nútíð og framtíð. Listaverkið er þakklætisvottur til þeirra Grindvíkinga sem í gegnum tíðina hafa ráðstafað tíma sínum og orku í þágu heildarinnar en um leið hvatning til að halda áfram á sömu braut. Skal verkið sett upp utandyra og á áberandi stað í sveitarfélaginu.

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, var sér sérstakur gestur hátíðarfundarins ásamt eiginkonu sinni, Elizu Reid. Í ávarpi sínu rakti Guðni að hann hafi flest ár í forsetatíð sinni heimsótt Grindavík í opinberum erindagjörðum. Í hvert sinn fann hann þann kraft, þá elju og þá samkennd sem ríkir í Grindavík. Færði hann Grindvíkingum hlýjar kveðjur fyrir hönd allrar þjóðarinnar. Lauk hann ræðu sinni á orðunum „við gefumst ekki upp“.

Fram kom í máli Ásrúnar Kristinsdóttur, forseta bæjarstjórnar, að bæjarfélagið Grindavík væri ríkt af sjálfboðaliðum sem á hverjum degi verja tíma sínum í margvísleg verkefni af umhyggju og einstakri ósérhlífni. Ásrún sagði jafnframt:

„Við þurfum að hlúa vel að sjálfboðastarfinu svo það haldi áfram að vera eftirsóknarvert. Við þurfum að undirbúa nýjar kynslóðir undir komandi verkefni þar sem sjálfboðastarf verður áfram mikilvægt.“

Á fundinum kom fram að bæjarstjórn muni vinna málið áfram í samvinnu við félagasamtök í Grindavík.

Undir lok fundar voru sjálfboðaliðum færðar bestu þakkir fyrir sín störf og var klappað fyrir þeirra framlagi til samfélagsins.

Forsetahjónin ásamt bæjarstjórn Grindavíkur og bæjarstjóra eftir hátíðarfundinn.