Viðskipti

Hreindýr og tónleikahald á Fish House
Kári Guðmundsson, eigandi Fish House.
Miðvikudagur 13. desember 2017 kl. 11:40

Hreindýr og tónleikahald á Fish House

Fish House hefur fengið létta yfirhalningu en staðurinn geymir margar góðar minningar í hjörtum íbúa Grindavíkur og jafnvel annarra Suðurnesjamanna. Kári hefur verið duglegur að halda tónleika á árinu og hefur meðal annars Mugison, Greta Salóme, Stebbi Jak, Valdimar og fleiri stigið á stokk á staðnum. Jólavertíðin er á fullu núna og hinn sívinsæli hreindýraborgari er á matseðlinum og mun hann vera það á meðan á jólahátíðinni stendur eða fram að þrettándanum. Blaðamaður Víkurfrétta hitti Kára Guðmundsson, eiganda Fish House í Grindavík, snemma að morgni en kvöldið áður hafði Kári eldað mat fyrir hundrað hressar kvenfélagkonur í Grindavík.

Jónas Sig og ritvélar framtíðarinnar þarf varla að kynna fyrir okkur Íslendingum en hann ásamt hljómsveit sinni mun stíga á stokk á Fish House þann 16. desember nk. klukkan 22. Jónas sjálfur kom fyrst fram með Sólstrandagæjunum sem nutu mikilla vinsælda á tíunda áratug síðustu aldar en hann, ásamt Ritvélum framtíðarinnar, hafa getið af sér gott orð og eru þekkt fyrir lifandi flutning, texta sem lætur engan ósnortinn og tónlist sem hrífur fólk með sér. Hljómsveitin gaf út „live“ plötu í vor og mun hún taka ýmis lög sveitarinnar á tónleikum sínum á Fish House.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

„Þetta verður svakalega gaman, þau munu eflaust taka sín vinsælustu lög, Jónas er með bakraddir og blásturshljóðfæraleikara og eru þau átta saman í hljómsveitinni. Við ákváðum að halda þessa tónleika í byrjun nóvember þannig að fyrirvarinn var frekar stuttur. Hljómsveitin hefur komið einu sinni áður fram í Grindavík en það var á Sjóaranum Síkáta, þá kom hún fram ásamt Fjallabræðrum, lúðrasveit Þorlákshafnar og kór Vestmannaeyja. Þeir tónleikar voru risastórir og flottir, þau eru svo hress og skemmtileg á sviði og ég bíð spenntur,“ segir Kári.

Stebbi Jak, söngvari Dimmu, og Andri Ívars gítarleikari koma fram á Fish House þann 14. desember. Þar munu þeir spila jólalög, þungarokk, hugljúfar ballöður, poppmúsík og allt þar á milli. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þeir félagar koma fram á Fish House og hefur alltaf myndast skemmtileg stemning þegar þeir mæta til Grindavíkur.

Hreindýraborgarinn hans Kára hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár og margir hafa beðið spenntir eftir komu hans og hefur verið ágætis jólatraffík hjá Kára og félögum í desember.

Þann 30. desember nk. mætir grindvíska hljómsveitin Hált í Sleipu á Fish House en í henni eru gamalreyndir tónlistarmenn úr Grindavík sem nutu mikilla vinsælda á meðal bæjarbúa fyrir „nokkrum“ árum síðan. Þar munu þeir rifja upp gamla takta og halda uppi skemmtilegri stemningu. Á gamlárskvöld verður síðan opið hús og DJ á staðnum til að halda uppi fjörinu.

Miðasala er í fullum gangi á tónleika Jónasar og Ritvéla framtíðarinnar á midi.is. Á tónleikunum verður einnig hægt að kaupa „best of“ plötu sem inniheldur öll vinsælustu lög Jónasar ásamt lifandi upptökum og áður óútgefnu efni.