Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Viðskipti

Fljúga milli Keflavíkurflugvallar og Delí á Indlandi
Þriðjudagur 15. maí 2018 kl. 09:05

Fljúga milli Keflavíkurflugvallar og Delí á Indlandi

WOW air mun hefja áætlunarflug til Delí á Indlandi 6.desember. Sala flugsæta hófst í dag en mikill áhugi er á þessari flugleið frá bæði Bandaríkjunum, Kanada og Indlandi. Flogið verður í glænýrri Airbus A330neo vél flugfélagsins fimm sinnum í viku. Flugtíminn til Indlands er 10 og hálfur klukkutími og er þetta lengsta áætlunarflug Íslandssögunnar.
 
„Aldrei fyrr hefur verið boðið upp á beint áætlunarflug til Indlands frá Íslandi og það er gaman að geta átt þátt í því að marka tímamót í íslenskri flugsögu. Indland er land mikillar sögu og menningar og það fá farþegar okkar að upplifa á frábærum verðum, í glænýjum flugvélum,“ segir Skúli Mogensen forstjóri og stofnandi WOW air.
 
Delí er önnur stærsta borg Indlands á eftir Mumbai og þar má finna höfuðborg Indlands, Nýju-Delí. Þar er hægt að kynnast landi og þjóð á fjölbreyttan hátt og sjá ýmsa sögufræga staði á borð við Taj Mahal sem jafan er talið eitt fegursta mannvirki á Indlandi en Shajahan konungur reisti það til heiðurs konu sinnar sem lést af barnsförum 1631. Þá eru þar haldnar ýmsar hátíðir á borð við Diwali (hátíð ljósanna) og Holi (hátíð lita) sem enginn má láta fram hjá sér fara.
Public deli
Public deli