Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Viðskipti

Aldrei fleiri flogið með WOW air
Mánudagur 3. september 2018 kl. 12:12

Aldrei fleiri flogið með WOW air

Sætanýting WOW air 93% í ágúst

WOW air flutti 413 þúsund farþega til og frá land­inu í ágúst eða um 28% fleiri farþega en í ágúst árið 2017. Þá var sæta­nýt­ing WOW air 93% í ágúst í ár en var 90% í fyrra. Sæta­nýt­ing­in jókst þrátt fyr­ir 30% aukn­ingu á fram­boðnum sætis­kíló­metr­um miðað við sama tíma­bil í fyrra. Þá hefur hlutfall tengifarþega aukist en í ár var hlutfallið 61% í ágúst miðað við 43% á sama tíma í fyrra.  Þetta kemur fram í frétt frá WOW air.

Aldrei hefur WOW air flutt jafnmarga farþega í einum mánuði og þetta er í annað sinn sem félagið flytur yfir 400 þúsund farþega í einum mánuði. Þá hefur hlutfall tengifarþega ekki verið jafnhátt áður. Það sem af er ári þá hef­ur WOW air flutt um 2,4 millj­ónir farþega.
 
WOW air flýgur nú til hátt í fjörutíu áfangastaða í Evrópu, Asíu og Norður Ameríku. Flug til Nýju Delí hefst í desember á þessu ári en þetta er í fyrsta sinn í íslenskri flugsögu sem boðið er upp á áætlunarflug til Indlands. 
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024