Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Viðskipti

30% hlutur HS Orku í  Bláa Lóninu seldur nýju félagi í eigu 14 lífeyrissjóða
Fimmtudagur 23. maí 2019 kl. 16:36

30% hlutur HS Orku í Bláa Lóninu seldur nýju félagi í eigu 14 lífeyrissjóða

-14 íslenskir lífeyrissjóðir munu eiga 50% í HS Orku

Jarðvarmi slhf. sem er í eigu fjórtán íslenskra lífeyrissjóða hefur keypt rúmlega helmingshlut í HS Orku af Innergex auk þess að kaupa 12,7% hlut fagfjárfestasjóðsins ORK í félaginu. 

Þá mun Ancala Partners, erlendur samstarfsaðili Jarðvarma í framhaldinu kaupa 50% hlut í HS Orku á móti Jarðvarma. Fyrir átti Jarðvarmi 33,4% hlut í HS Orku. Samtals er um að ræða kaup á 66,6% hlut í HS Orku. Samanlagt kaupverð hlutanna er um 47 milljarðar króna. 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Nýtt félag, Blávarmi slhf. Sem er í aigu sömu lífeyrissjóða mun eignast 30% hlut HS Orku í Bláa Lóninu. Kaupverðið er 15 milljarðar króna.

Áður en til þessara viðskipta kom hafði Innergex samið um sölu á hlutum í HS Orku með fyrirvara um forkaupsrétt Jarðvarma. Sem fyrr segir ákvað Jarðvarmi að virkja forkaupsrétt sinn og leysa hlutinn til sín á sama verði og samið hafði verið um í þeim viðskiptum.

Ancala Partners er breskt sjóðastýringarfyrirtæki sem sérhæfir sig í evrópskum innviðafjárfestingum. Innan félagsins er mikil þekking á eignarhaldi og rekstri orkufyrirtækja.

„Það er fagnaðarefni að söluferlinu sé lokið. Félagið verður í eigu tveggja öflugra og traustra hluthafa sem hafa skýr áform um stuðning við það og uppbyggingu þess til langframa. Jarðvarmi hefur verið hluthafi í félaginu frá árinu 2011 og stutt það afar vel. Við hlökkum til samstarfs við hluthafana við áframhaldandi uppbyggingu og rekstur félagsins.  Viðskiptin eru enn fremur jákvæður vitnisburður um þróun félagsins og það góða starf sem hæft starfsfólk okkar vinnur,“ segirÁsgeir Margeirsson forstjóri HS Orku hf.

„Með þessum viðskiptum skapast stöðugleiki um eignarhald á HS Orku til framtíðar. Sérfræðiþekking Ancala á sviði endurnýjanlegrar orku og sameiginleg sýn okkar á þau tækifæri sem eru til staðar fyrir HS Orku til lengri tíma gerir Ancala að ákjósanlegum meðeiganda. Fram undan eru spennandi tækifæri við frekari uppbyggingu HS Orku. Þá er Bláa Lónið kjölfesta í íslenskri ferðaþjónustu sem hefur byggt upp sterkt alþjóðlegt vörumerki. Uppbygging síðustu ára skapar tækifæri til enn frekari vaxtar sem eigendur Blávarma hyggjast taka fullan þátt í,“ segir Davíð Rúdólfsson stjórnarformaður Jarðvarma og Blávarma.

„Við fögnum samstarfinu við Jarðvarma um fjárfestinguna í HS Orku. Í rekstri HS Orku deila Ancala og Jarðvarmi sameiginlegri hugmyndafræði þar sem áhersla er lögð á stuðning við stjórnendur, frekari fjárfestingar og samstarf til langs tíma. HS Orka er ákjósanlegur grunnur til að vinna að frekari verkefnum á hinum áhugaverða vettvangi endurnýjanlegrar orku á Íslandi,“ segir Lee Mellor, meðeigandi Ancala Partners.