Laugardagur 23. mars 2019 kl. 08:00

Sjónvarp: Fólk í kaupstað“ í Duus Safnahúsum

Nú stendur yfir ljósmyndasýningin „Fólk í kaupstað“ í Stofunni í Duus Safnahúsum.  Á sýningunni gefur að líta örlítið sýnishorn af ljósmyndum í eigu Byggðasafns Reykjanesbæjar. Þema sýningarinnar er fólk og fjölbreytt mannlíf í kaupstaðnum Keflavík og nágrannabænum Njarðvík á árunum 1944 til 1994.

Í spilaranum er viðtal við Eirík Pál Jörundsson forstöðumann Byggðasafns Reykjanesbæjar um ljósmyndasafn byggðasafnsins.