Mannlíf

Vel heppnuð pólsk menningarhátíð í Reykjanesbæ
Laugardagur 10. nóvember 2018 kl. 16:28

Vel heppnuð pólsk menningarhátíð í Reykjanesbæ

„Ég er bara í skýjunum með hátíðina. Frábær þátttaka og skemmtilegur dagur hér í bókasafninu. Gefur okkur byr undir báða vængi um framhaldið að styrkja sambandið milli Pólverja og heimamanna,“ sagði Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir, forstöðumaður fjölmenningarsviðs Reykjanesbæjar en húsfyllir varð á pólskri menningarhátíð á þjóðhátíðardegi Póllands.

Boðið var upp á tónlistaratriði og pólskar veitingar í bókasafninu. Pólsk ungmenni voru kynnar og sáu um atriðin og stóðu sig með mikilli prýði.

Gerard Pokruszynski, sendiherra Pólverja á Íslandi mætti ásamt eiginkonu sinni á hátíðina og var mjög ánægður þegar VF ræddi við hann. „Í Reykjanesbær eru hlutfallslega flestir Pólverjar. Þessi hátíð verður örugglega til þess að styrkja frekar sambandið milli þeirra og íbúa á Suðurnesjum. Þeir eru mjög ánægðir og hafa margir atvinnu hér á svæðinu og vilja styrkja böndin. Það mun gerast, ég er sannfærður um það.“

Eins og sjá má á myndunum var húsfyllir og góð stemmning í bókasafninu en þetta er í fyrsta sinn sem svona hátíð er haldin á Suðurnesjum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Kjartan Már bæjarstjóri flutti stutt ávarp á hátíðinni.



Í boði voru skemmtiatriði og góðar veitingar.

Pólsk menningarhátíð í Reykjanesbæ