Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Mannlíf

Syngjandi frá Kaliforníu til Grindavíkur
Miðvikudagur 20. febrúar 2019 kl. 09:25

Syngjandi frá Kaliforníu til Grindavíkur

Stúlkur úr menntaskólanum Mountain View High School A Cappella frá Kaliforníu munu heimsækja Grindavík fimmtudaginn 21. febrúar og vera með tónleika annars vegar í Víðihlíð kl.14:00 og hins vegar í Grindavíkurkirkju klukkan 18:00.
 
Bandarísku stúlkurnar eru í úrvalshópi tónlistarnema menntaskólans í Mountain View í Kaliforníu. Efnisskrá þeirra er fjölbreytt og þær syngja klassísk lög, þjóðlög og popplög. Svo syngja þær líka lagið Söngur sjómannskonunnar eftir Margréti Sighvatsdóttur frá Grindavík,  en blandaður kór frá skólanum þeirra kom einmitt og söng þar árið 2012 við góðar undirtektir.
 
Tónleikarnir í Grindavíkurkirkju klukkan 18:00 verða ásamt nýstofnuðum Kvennakór Grindavíkur.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024