Ljiridona er FS-ingur vikunnar
FS-ingur: Ljiridona Osmani
Á hvaða braut ertu? Félagsfræðibraut
Hvaðan ertu og aldur? Er frá Kósóvó og er ný orðin tvítug
Helsti kostur FS? Félagsskapurinn
Hver eru þín áhugamál? Fótbolti
Hvað hræðist þú mest? Að drukkna
Hvaða FS-ingur er líklegur til þess að verða frægur og hvers vegna? Anita Lind og Sveindís Jane verða fótboltastjörnur Keflavíkur
Hver er fyndnastur í skólanum? Lára Hanna og Margrét Hilda
Hvað sástu síðast í bíó? Annabelle: Creation
Hvað finnst þér vanta í mötuneytið? TYGGJÓ!
Hver er þinn helsti galli? Ég er rosalega skapstór
Hver er þinn helsti kostur? Er metnaðarfull
Hvaða þrjú öpp eru mest notuð í símanum hjá þér? Facebook, Instagram og Snapchat
Hverju myndir þú breyta ef þú værir skólameistari FS? Stytta tímana, þeir eru of langir
Hvaða eiginleiki finnst þér bestur í fari fólks? Heiðarleiki
Hvernig finnst þér félagslífið í skólanum? Rosalega gott að mínu mati
Hvert er stefnan tekin í framtíðinni? Ætla að fara í háskóla núna í vor og læra uppeldis- og menntunarfræði en er eiginlega ekki búin að ákveða hvað ég ætla að gera eftir það
Hvað finnst þér best við það að búa á Suðurnesjunum? Hvað það er lítil traffík og að flugvöllurinn er rétt hjá
Eftirlætis-
Kennari: Bagga og Bogi
Fag í skólanum: Félagsfræði og sálfræði
Sjónvarpsþættir: Friends
Kvikmynd: Allar hryllingsmyndir
Hljómsveit/tónlistarmaður: Drake
Leikari: Ross í Friends eða David Scwimmer