Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Mannlíf

Lilli klifurmús syngur í kór og smíðar hús
Dýrin í Hálsaskógi hafa slegið í gegn hjá Leikfélagi Keflavíkur. Sigurður Smári fer þar með eitt aðalhlutverkanna.
Sunnudagur 17. desember 2017 kl. 06:00

Lilli klifurmús syngur í kór og smíðar hús

-Sigurður Smári Hansson ákvað að mæta og prófa hjá Leikfélagi Keflavíkur fyrir nokkrum árum og hefur ekki farið út síðan

„Ég sá auglýsingu frá unglingaleikfélaginu þegar ég var í 10. bekk og ákvað að prófa þetta bara og hef ekki losnað síðan,“ segir tónlistarmaðurinn og áhugaleikarinn Sigurður Smári Hansson, en síðustu ár hefur hann verið allt í öllu í menningar- og félagslífinu á Suðurnesjum.

Hann hefur tekið þátt í sjö uppfærslum hjá Leikfélagi Keflavíkur, bæði keppt og þjálfað í MORFÍs, mælsku- og rökræðukeppni framhaldsskólanna, og syngur einnig með sönghópnum Vox Felix, undir stjórn Arnórs Vilbergssonar, sem keppti fyrir stuttu í úrslitum söngkeppninnar Kórar Íslands. Þess á milli kemur Sigurður Smári fram við alls kyns tilefni með gítarinn við hönd og segist ekki vera á leiðinni að hætta því neitt á næstunni. „Maður fær náttúrulega bara einhverja fáránlega unun við það að spila tónlist. Ef ég set tónlist í eyrun get ég gleymt mér í fleiri klukkutíma,“ segir hann.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Þessa dagana tekur Smári, eins og hann er oftast kallaður, þátt í uppfærslu Leikfélags Keflavíkur á Dýrunum í Hálsaskógi sem hefur fengið frábærar viðtökur. Þar fer hann með hlutverk Lilla klifurmúsar. „Þetta er örugglega skemmtilegasta sýning sem ég hef tekið þátt í. En ég leik oftast svo mikinn sprellikarl að mér finnst rosalega gaman að fá að breyta til stundum og fá að vera aðeins alvarlegri,“ segir hann. Litla Hryllingsbúðin var síðasta leikrit sem Smári tók þátt í, en þar fór hann með hlutverk Baldurs sem hann segir hafa verið mesta áskorunin fyrir hann síðan hann byrjaði í leikfélaginu.


Marteinn skógarmús, sem leikinn er af Höllu Karen Guðjónsdóttur, og Smári í upphitun fyrir sýningu.

Í grunnskóla tók Smári þátt í alls kyns skemmtunum. „Maður var notaður í allt, árshátíðir og svoleiðis. Í Fjölbrautaskóla Suðurnesja var ég í nemendaráðinu og þegar ég færði mig í Leikfélag Keflavíkur tók ég þátt í öllu þar.“

Aðspurður hvað heilli sig svona við leiklistina svarar Smári því að fólkið sem hann vinnur með sé svo skemmtilegt. „Ég ákvað að mæta og prófa fyrir mörgum árum og hef ekki farið út síðan.“

Aðeins 10 ára gamall eignaðist Smári gítar sem hann með tímanum lærði að spila á sjálfur. Í dag spilar hann einnig á píanó og trommur en kemur þó oftast fram með gítarinn. „Það hjálpar manni helling að vera sviðsvanur þegar maður kemur fram.“ Hann segir þó að söngurinn og leiklistin sé aðallega áhugamál og stefnir að því að verða húsasmiður. Smári starfar nú hjá Braga Guðmundssyni ehf. í Garðinum, en hann ákvað að byrja að læra húsasmíði eftir að hafa unnið hjá honum í nokkur sumur og líkað vel.


Smári ásamt kórfélögum sínum á æfingu hjá Vox Felix í Keflavíkurkirkju.

Smári segist stefna að því einn daginn að semja tónlist sjálfur en það verði þó líklegast ekki fyrr en hann hefur fundið út úr því hvernig hægt sé að bæta fleiri klukkutímum við sólarhringinn. „Þá kannski reynir maður að setjast niður og búa eitthvað til. En þangað til, á meðan það eru 24 klukkutímar í sólarhringnum, þá gefst lítill tími í það.“

Hægt er að panta miða á Dýrin í Hálsaskógi í síma 421-2540. Þá er einnig hægt að bóka Sigurð Smára á viðburði í gegnum Facebook.

Uppáhalds maturinn þinn: Lambalæri með bernaise.
Uppáhalds drykkur: Ískalt vatn er lúmskt, maður gleymir því alltaf hvað það er gott.
Uppáhalds tónlistarmaður: Ed Sheeran.
Uppáhalds leikari: Hilmir Snær.

Skemmtilegasta gigg sem þú hefur spilað:
Brúðkaup sem ég spilaði í í sumar, safnaði saman hljómsveit. Það var mjög gaman.

Ef þú værir fastur á eyðieyju, hvaða þrjá hluti myndirðu taka með þér?
Gítar, íslenska vatnið og Hilmar Braga frænda.

Ef þú ættir 500 kall, hvað myndirðu kaupa þér?
Ég myndi kaupa nokkrar raðir í Lottó og athuga hvort ég næði ekki að búa til meiri pening.

Ertu hjátrúarfullur?
Nei.

Hvort ertu meiri söngvari eða leikari?
Þetta er eins og að gera upp á milli barnanna minna.

Hvað vildirðu verða þegar þú varst lítill?
Fótboltamaður held ég.

Hvað ætlarðu að verða þegar þú verður stór?
Ég stefni á það að verða húsasmiður. Við byrjum bara á því og svo sér maður hvað gerist.

Hvað er það fyrsta sem þér dettur í hug þegar þú heyrir...
Vegan: Próteinskortur
Peningur: Mánaðarmót
Tónlist: Gítar
Kvenmaður: Sólný

[email protected]