Mannlíf

Íbúafundir í Grindavík og Reykjanesbæ í kvöld
Íbúafundur sem fram fór í Vogum í gær var afar vel sóttur og líflegur.
Miðvikudagur 20. febrúar 2019 kl. 11:38

Íbúafundir í Grindavík og Reykjanesbæ í kvöld

Ferðamál rædd í þaula

Markaðsstofa Reykjaness og Reykjanes UNESCO Global Geopark í samstarfi við sveitarfélögin á Suðurnesjum boða til opinna funda um ferðamál á Reykjanesi. Í kvöld fara fram fundir í Grindavík og Reykjanesbæ.

Á fundunum verður staða ferðaþjónustunnar á Reykjanesi rædd og farið yfir þau verkefni sem eru framundan í þessari vaxandi atvinnugrein. Starfsemi Markaðsstofu Reykjaness og Reykjanes UNESCO Global Geopark verður kynnt, sem og verkefni og stefnur sveitarfélaganna í ferðamálum. Að loknum stuttum kynningum verður opnað fyrir fyrirspurnir og almennar umræður.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Fundirnir verða sem hér segir:

GRINDAVÍK: Miðvikd. 20. febrúar kl. 17:15 í Kvikunni, Hafnargötu 12a

REYKJANESBÆR: Miðvikd. 20. febrúar kl. 20:00 í Bíósal Duus safnahúsa, Duusgötu 2-8

SUÐURNESJABÆR: Fimmtd. 21. Febrúar kl. 17.15 í Vörðunni Sandgerði, Miðnestorgi 3

Smella má á nöfn bæjarfélaga hér að ofan til þess að sjá viðburðina á Facebook.

Ætlunin er að ræða stöðu ferðaþjónustunnar á Reykjanesi sem og að skoða þau verkefni sem eru framundan í þessari vaxandi atvinnugrein. Fundirnir eru öllum opnir og eru íbúar sem ekki komast á fundi í sínum sveitarfélögum eru hvattir til að mæta á fundi á öðrum tíma í öðrum sveitarfélögum.