Íþróttir

Þróttur býður upp á skriðsundnámskeið fyrir fullorðna
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
miðvikudaginn 3. apríl 2024 kl. 09:19

Þróttur býður upp á skriðsundnámskeið fyrir fullorðna

Kraftmiklir Þróttarar eru að fara byrja með skriðsundsnámskeið fyrir fullorðna og hefst námskeið 9. apríl og lýkur 9. maí. 

Á námskeiðunum er farið yfir grunntækni skriðsunds og gerðar æfingar til að kenna tækni fyrir skriðsund.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

„Námskeiðin henta vel fyrir þá sem vilja læra skriðsund eða bæta hjá sér tæknina og einnig sem góður inngangur fyrir þá sem vilja byrja á nýjum lífstíl eða breyta til,“ segir Thelma Rúnarsdóttir, þjálfari sunddeildar Þróttar. Thelma vildi einnig koma á framfæri að skráningar eru hafnar á heimasíðu Þróttar og er öllum velkomið að skrá sig til leiks.