Íþróttir

Þróttarar í úrslitakeppnina
Sigurlið Þróttar sem vann 2. deild á síðasta ári. Mynd af vef Þróttar Vogum
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
föstudaginn 5. apríl 2024 kl. 08:49

Þróttarar í úrslitakeppnina

Verður Þróttur með úrvalsdeildarlið í körfunni á næsta ári?

Þróttarar náðu þeim magnaða árangri að komast í úrslitakeppni 1. deildar karla í körfuknattleik á sínu fyrsta ári í næstefstu deild.

Þróttur hafnaði í sjöunda sæti deildarinnar og voru lengi vel í toppbaráttu. Þróttarar mæta Sindra, liðinu í fjórða sæti, á útivelli í fyrsta leik úrslitakeppninnar. Annar leikur liðanna verður leikinn 8. apríl og fer þá fram á heimavelli Þróttar (sem leikur heimaleiki sína í Sandgerði) og segja Þróttarar að þar verði engu til sparað.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Árangur Þróttar verður að teljast frábær en Þróttur er á sínu fyrsta ári í næstefstu deild. Körfuknattleiksdeild Þróttar hefur minna fjármagn á milli handanna en önnur lið í deildinni og er eina liðið í deildinni sem hefur ekki útlending innan sinna raða.