Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Íþróttir

Sigmundur í sviðsljósinu í Lettlandi
Sigmundur í leiknum í Riga sem var hörku spennandi.
Föstudagur 12. janúar 2018 kl. 09:46

Sigmundur í sviðsljósinu í Lettlandi

Suðurnesjamaðurinn og körfuboltadómarinn Sigmundur Már Herbertsson í sviðsljósinu í Riga í Lettlandi í gær þegar hann dæmdi leik á vegum FIBA í EuroCup kvenna í Riga í Lettlandi. Þar áttust við heimakonur í TTT Riga gegn Mersin frá Tyrklandi.
 
Sigmundur, sem er  FIBA dómari var  ekki eini Íslendingurinn við störf á leiknum því Rúnar Birgir Gíslason, eftirlitsmaður FIBA, sinni störfum í leiknum og var þetta í fyrsta sinn sem Íslendingar áttu tvo fulltrúa á sama leiknum á vegum FIBA, og því um sögulegan viðburð að ræða í íslenzkri körfuknattleikssögu.
 
Meðdómarar Sigmundar Más voru þeir Tamas Benczur (aðaldómari) frá Ungverjalandi og Vladyslav Isachenko frá Úkraínu.
Um hörkuspennadi leik var að ræða, en honum lauk 62:63 fyrir gestina frá Tyrklandi.
Public deli
Public deli