Íþróttir

Samúel í landsliðshópinn gegn Indónesíu
Samúel með Lukaku á eftir sér í leik gegn Man. Utd. í haust.
Laugardagur 16. desember 2017 kl. 15:37

Samúel í landsliðshópinn gegn Indónesíu

Keflvíkingurinn Samúel Kári Friðjónsson var einn af fjórum nýliðum sem valdir voru í landsliðshópinn í knattspyrnu sem leikur vináttuleiki gegn Indónesíu dagana 10.-14. janúar nk. Ekki er um alþjóðlega leikdaga að ræða og því er landsliðshópurinn mikið breyttur.

Auk Samúels er Keflvíkingurinn Arnór Ingvi Traustason í hópnum en hann er nýfarinn til Malmö í Svíþjóð frá Grikklandi. Samúel hefur gengið vel hjá Valerenga og hefur leikið með yngri landsliðum Íslands.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024