Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Íþróttir

Sameinast um lið í bikarkeppni kvenna
Mánudagur 7. janúar 2019 kl. 15:33

Sameinast um lið í bikarkeppni kvenna

Víðir og Þróttur hafa ákveðið að senda sameiginlegt lið kvenna í bikarkeppni KSÍ undir merkjum Víðir/Þróttur V. Hugmyndin kviknaði fyrst þegar Knattspyrnusamband Íslands fjölgaði um eina deild í meistaraflokki kvenna fyrir tveimur árum. Á dögunum hittust fulltrúar félaganna og ákveðið var að taka aftur þátt í bikarkeppninni. Vel tókst til og verður tekin ákvörðun hvort það sé grunnur til að byggja á fyrir næsta ár í frekari keppni. 
 
Félögin vilja efla kvennaknattspyrnuna á Suðurnesjunum því þar er fullt af stelpum sem hafa lagt skóna a hilluna, eru í hléi frá knattspyrnu eða hafa flosnað upp úr liðunum sem fyrir eru og því viljum við láta reyna á þetta uppbyggilega verkefni í sameiningu, segja Marteinn Ægisson framkvæmdastjóri Þróttar og Sólmundur Einvarðsson formaður Víðis í tilkynningu. 
 
Aðilar sem langar til að taka þátt í þessu verkefni, hvort sem er leikmenn eða sjálfboðaliðar, er bent á að hafa samband við Sólmund hjá Víði í síma 867-7111, netfang [email protected] eða Marteinn hjá Þrótti í síma 892-6789, netfang [email protected]
 
Æfingar hefjast í febrúar og stefnan sett á æfingaleiki fyrir komandi bikarþátttöku. Þjálfari liðsins verður Arnar Smárason. 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024