Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Íþróttir

Njarðvík sigraði á Péturs-mótinu í körfubolta
Logi Gunnarsson fagnar sigrinum.
Mánudagur 17. september 2018 kl. 14:44

Njarðvík sigraði á Péturs-mótinu í körfubolta

Njarðvík sigraði á sigurvegari á Pétursmótinu 2018 eftir 82-69 sigur á KR í úrslitaleik mótsins. Nokkuð jafnt var á með liðunum framan af leik en Njarðvíkingar slitu sig frá í þriðja leikhluta og lönduðu öruggum sigri í leiknum.
Jeb Ivey og Kristinn Pálsson voru fjarverandi í liði Njarðvíkinga en Ivey er staddur í Bandaríkjunum um þessar mundir þar sem hann á von á sínu þriðja barni. Kristinn er í Portúgal að gera sig kláran með A-landsliðinu í slaginn gegn heimamönnum sem hefst kl. 17.30 í dag að íslenskum tíma.
Gott mót að baki og vel að því staðið. Körfuknattleiksdeild UMFN vill koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem stóðu að framkvæmdinni.
 

Public deli
Public deli