Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Íþróttir

Magnús með Íslandsmet í loftriffli unglinga
Magnús G. Jensson.
Mánudagur 20. nóvember 2017 kl. 15:47

Magnús með Íslandsmet í loftriffli unglinga

Opna Kópavogsmótið í loftgreinum var haldið af Skotíþróttafélagi Kópavogs síðustu helgi. Þar átti Skotdeild Keflavíkur sjö keppendur, þrjá í loftskammbyssu og fjóra í loftriffli.
Í loftskammbyssu kepptu Dúi Sigurðsson (520 stig), Jens Magnússon (515 stig) og Hannes H. Gilbert (513 stig).
Maður mótsins var Magnús G. Jensson en ásamt því að vera í fyrsta sæti í unglingaflokki pilta þá setti hann nýtt íslandsmet með 557,7 stigum, en hann átti einnig eldra Íslandsmetið. Hann setti það viku á undan á landsmóti STÍ sem haldið var í Borgarnesi en þar skaut hann 549,0 stig. Magnús var einnig í öðru sæti yfir allt mótið en hann keppir í unglingaflokki.

Public deli
Public deli

Í loftriffli kepptu Theodór Kjartansson (524,2 stig), Magnús G. Jensson (557,7 stig) og Helgi S.Jónsson (508,3 stig) í unglingaflokki pilta og Sigríður E. Gísladóttir (339.6 stig) í unglingaflokki stúlkna.