Íþróttir

Jeb Ivey með stórleik í sigri á Val - Grindavík heimsækir Keflavík
Jeb Ivey átti stórleik með UMFN gegn Val. Crion og Keflvíkingar fá Grindavík í heimsókn.
Föstudagur 18. janúar 2019 kl. 13:29

Jeb Ivey með stórleik í sigri á Val - Grindavík heimsækir Keflavík

Njarðvíkingar juku muninn á toppnum í Domino’s deildinni í körfubolta þegar þeir unnu Val á útivelli 86-90 og eru nú með fjögurra stiga forskot á Tindastól sem tapaði.

Jeb Ivey fór mikinn í liði Njarðvíkur og skoraði 28 stig en Elvar Már Friðriksson skoraði 21. Valsmenn léku vel gegn sterku liði UMFN en ljónin úr Njarðvík spýttu í lófana síðustu mínúturnar og innbirtu skyldusigur.

Það er stórleikur á Suðurnesjum í kvöld, föstudag en þá heimsækja Grindvíkingar Keflvíkinga í Blue höllina og hefst leikurinn kl. 20.15.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024