Fréttir

Umhverfisstjórnunarkerfi flugfjarskipta Isavia fær alþjóðavottun
Miðvikudagur 17. október 2018 kl. 05:00

Umhverfisstjórnunarkerfi flugfjarskipta Isavia fær alþjóðavottun

Flugfjarskipti Isavia hafa fengið hafa fengið ISO14001 vottun frá BSI, Bresku staðlastofnuninni. Þessi nýja vottun staðfestir að á starfsstöðinni er starfrækt virkt umhverfisstjórnunarkerfi samkvæmt ISO14001 staðlinum. Flugfjarskiptin eru fyrsta starfsstöð Isavia til að fá slíka vottun.
 
Fjarskipti við flugvélar á ferð yfir Norður-Atlantshafið eru mikilvægur hluti af þeirri þjónustu sem Isavia veitir. Fjarskiptastöðin í Gufunesi heldur uppi talfjarskiptum á stutt- og metrabylgju í samvinnu við fjarskiptastöðina í Ballygirreen á Írlandi. Starfsemin felst í móttöku og sendingu á skeytum sem varða öryggi flugsins, þar á meðal eru staðarákvarðanir, flughæða-, hraða- og flugleiðabreytingar, veðurskeyti, upplýsingar um lendingarskilyrði á flugvöllum og annað slíkt.
 
Markmið umhverfisstjórnunarkerfisins er að hafa eftirlit með og stýra þeim umhverfisáhrifum sem af starfseminni verða, ásamt því sem unnið er markvisst að því að minnka áhrifin. Sett eru metnaðarfull markmið í þeim efnum og unnið að stöðugum umbótum og eftirfylgni með þeim. Markmið flugfjarskipta í þessum efnum tengjast beint Umhverfisstefnu Isavia, markmiðum Isavia í tengslum við Loftslagssáttmála Reykjavíkurborgar og Festu, ásamt öðrum markmiðum fyrirtækisins í umhverfismálum.

Flugfjarskipti hafa einnig lokið 4 grænum skrefum af verkefni Umhverfisstofnunar. 
 
Starfsstöðin hefur gengið á undan með afar góðu fordæmi. 
• Ríflega 60% alls sorps frá starfseminni fer í endurvinnslu.

• Úrgangur er flokkaður í sjö mismunandi flokka.

• Meirihluti alls lífræns sorps fer í að fóðra hænur starfsstöðvarinnar eða í moltugerð.

• Notkun á heitu og köldu vatni er vöktuð.

• Eldsneytisnotkun er lágmörkuð eins og hægt er með stöðugri vöktun.

• Innkaupastefna er vel skilgreind þannig að keyptar eru inn umhverfisvottaðar vörur ásamt „fair trade“ vörum þar sem það er hægt.

• Einnota borðbúnaður, eins og t.d. drykkjarmál, er ekki í notkun.
 
Flugfjarskipti Isavia hafa einnig lagt áherslu á að fræða starfsfólk sitt um umhverfismál og hvernig það geti sjálft langt hönd á plóginn. Grunnurinn að þessu mikla og góða verkefni er þátttaka starfsfólks og stuðningur yfirmanna við þetta verkefni og á allur sá hópur miklar þakkir skildar.
 
Innleiðing stjórnunarkerfisins hefur verið í höndum Maríu Kjartansdóttur, verkefnisstjóra umhverfismála hjá Isavia, Hallgríms N. Sigurðssonar, deildarstjóra Flugfjarskipta, og Helgu R. Eyjólfsdóttur, öryggis- og gæðastjóra Isavia.

Public deli
Public deli