Fréttir

Stakksberg fagnar því að bæjarstjórn vandi skoðun sína
Þriðjudagur 16. október 2018 kl. 19:34

Stakksberg fagnar því að bæjarstjórn vandi skoðun sína

„Stakksberg fagnar því að bæjarstjórnin vandi skoðun sína á erindi félagsins. Félagið mun áfram vinna að mati á umhverfisáhrifum í samræmi við úrbótaáætlun og áréttar að félagið telur rétt að þessir tveir ferlar verði unnir samhliða til þess að tryggja aðkomu almennings og hagsmunaaðila að skipulagsferlinu á fyrstu stigum þess. Telur félagið að slíkt myndi stuðla að auknu gagnsæi og upplýsingaflæði, skila betri og markvissari skipulagsvinnu og veita sveitarstjórn og öðrum sem koma að skipulagsgerðinni betri yfirsýn allt frá upphafi vinnunnar. Stakksberg mun kappkosta að málið verði unnið með vönduðum hætti og í góðu samráði við sveitarfélagið og aðra hagsmunaaðila,“ segir í tilkynningu frá Stakksbergi ehf. sem send var Víkurfréttum rétt í þessu.
 
Þann 25. september 2018 sendi Verkís fyrir hönd Stakksbergs ehf. erindi til Reykjanesbæjar um að skipulags- og matslýsing, vegna umbóta á verksmiðju félagsins í Helguvík,  verði tekin til meðferðar samkvæmt 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt var farið fram á heimild til að vinna deiliskipulagsbreytingu í samræmi við ofangreinda skipulags- og matslýsingu samkvæmt 2 mgr. 38. gr. laganna. 
 
Aðdragandi málsins var sá að í bréfi Skipulagsstofnunar, dags. 12. maí 2017, til Reykjanesbæjar var þeim tilmælum beint til sveitarfélagsins að það tæki þá þegar til endurskoðunar deiliskipulag á lóð sem verksmiðja Stakksbergs stendur á. Þá eru byggingarreitir á lóðinni í gildandi deiliskipulagi aðskildir sem setur möguleikum til endurbóta á kísilverinu skorður. Aðalmarkmið deiliskipulagsbreytingarinnar er að koma til móts við athugasemdir Skipulagsstofnunar og að skapa svigrúm fyrir þær úrbætur á verksmiðjunni sem Umhverfisstofnun hefur krafist í því skyni að lágmarka umhverfisáhrif af rekstri hennar.
 
Erindið var tekið fyrir á fundi umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar þann 12. október og var erindinu þar hafnað. Eins og vf.is greindi frá fyrr í kvöld var ákveðið á bæjarstjórnarfundi áðan að fresta afgreiðslu á niðurstöðu umhverfis- og skipulagsráðs í því skyni að sveitarfélagið gæti aflað frekari upplýsinga frá Skipulagsstofnun auk þess að vinna nánari greiningu á málinu. 
Public deli
Public deli