Fréttir

Slagsmál um borð í flugvél
Mánudagur 16. október 2017 kl. 13:00

Slagsmál um borð í flugvél

Lögreglunni á Suðurnesjum var í vikunni tilkynnt um slagsmál um borð í flugvél á Keflavíkurflugvelli sem átti að fljúga til Denver. Þar reyndist vera á ferðinni par sem hafði komið með flugi frá París og hafði einnig látið öllum illum látum um borð í þeirri vél. Óskaði flugstjóri fyrrnefndu vélarinnar eftir því að lögregla fjarlægði skötuhjúin úr vélinni sem var gert. Konan hélt ólátunum áfram eftir að komið var inn í flugstöðina og var hún því handtekin vegna ölvunarástands og flutt á lögreglustöð. Þar var hún látin sofa úr sér og síðan tekin af henni skýrsla áður en hún var frjáls ferða sinna.

Þá þurfti lögregla að taka tvo karlmenn, er ætluðu með flugi til Vilinius, af vélinni vegna ölvunarástands þeirra.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024