Fréttir

Sex kærðir fyrir of hraðan akstur
Þriðjudagur 12. september 2017 kl. 11:44

Sex kærðir fyrir of hraðan akstur

Sex ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á síðustu dögum. Einn af þeim ók á rúmlega tvöföldum hámarkshraða eða 63 km hraða þar sem hámarkshraðinn er 30 km. Þrír ökumenn voru handteknir vegna gruns um vímuefnaakstur og voru skráninganúmer fjarlægð af fjórum bifreiðum sem voru ýmis ótryggðar eða óskoðaðar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024