Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Sætanýting WOW air 92% í júlí
Fimmtudagur 9. ágúst 2018 kl. 10:27

Sætanýting WOW air 92% í júlí

Farþegum fjölgar um 29%

WOW air flutti 409 þúsund farþega til og frá land­inu í júlí eða um 29% fleiri farþega en í júlí árið 2017. Þá var sæta­nýt­ing WOW air 92% í júlí í ár en var 90% í fyrra. Sæta­nýt­ing­in jókst þrátt fyr­ir 32% aukn­ingu á fram­boðnum sætis­kíló­metr­um miðað við sama tíma­bil í fyrra. Þá hefur hlutfall tengifarþega aukist en í ár var hlutfallið 59% í júlí miðað við 44% á sama tíma í fyrra. Það sem af er ári þá hef­ur WOW air flutt um tvær millj­ónir farþega.

WOW air flýgur nú til hátt í fjörutíu áfangastaða í Evrópu, Asíu og Norður Ameríku. Nýlega var tilkynnt um heilsársflug til Mílanó með bættum flugtímum en hingað til hefur aðeins verið flogið til Mílanó á sumrin. Þá hefst áætlunarflug til Indlands í desember á þessu ári.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024