Fréttir

Ölvaður ökumaður í hraðakstri
Þriðjudagur 14. maí 2019 kl. 11:39

Ölvaður ökumaður í hraðakstri

Um tuttugu ökumenn hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á síðustu dögum.  Einn þeirra var jafnframt grunaður um ölvun við akstur og að framvísa fölsuðu ökuskírteini.
 
Sá sem hraðast ók af þessum ökumönnum mældist á 143 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund.
 
Þá voru skráningarnúmer fjarlægð af fáeinum bifreiðum sem  voru ótryggðar eða óskoðaðar.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024