Fréttir

Nýtt framhaldsskólanám í tölvuleikjagerð hjá Keili hefst í haust
Ljósmynd af heimasíðu Keilis.
Mánudagur 21. janúar 2019 kl. 13:51

Nýtt framhaldsskólanám í tölvuleikjagerð hjá Keili hefst í haust

Ný námsleið til stúdentsprófs með áherslu á tölvuleikjagerð verður í boði á vegum Keilis frá og með næsta hausti, samkvæmt samkomulagi milli Mennta- og menningarmálaráðuneytisins og Keilis. Námið hefur verið nokkur ár í burðarliðnum en með samkomulaginu hefur ráðuneytið nú veitt skólanum leyfi til inntöku allt að 40 nýnema á haustönn 2019. 
 
Velta tölvuleikjaiðnaðarins á heimsvísu er nú orðin meiri en kvikmyndaiðnaðarins. Á Íslandi eru tekjur af leikjaiðnaði nær eingöngu í formi útflutnings og hefur verið skortur á vel menntuðu innlendu starfsfólki við greinina. Markmið Keilis er að bjóða upp á nám í tölvuleikagerð sem svarar bæði ákalli atvinnulífsins eftir vel menntuðu og sérhæfðu starfsfólki og áhuga ungs fólks á menntun til starfa í skapandi greinum. Áhersla verður lögð á náin tengsl við atvinnulífið en tölvuleikjaframleiðendur á Íslandi og Samtök leikja­framleiðenda á Íslandi (IGI) munu veita faglega ráðgjöf við gæðastjórnun og framkvæmd námsins.
 

Ný nálgun í kennslu og námsuhverfi

 
Þetta í fyrsta sinn sem Keilir býður upp á nám til stúdentsprófs frá því að skólinn var stofnaður árið 2007. Nám í tölvuleikjagerð á framhaldsskólastigi byggir á kjarna- og valfögum sem einskorðast ekki við forritun heldur taka á öllum fjölbreyttum þáttum sem til grundvallar eru fyrir skapandi starf leikjagerðarfólks, s.s.  hönnun, tónlist, hljóðupptökur, verkefnastjórnun og heimspeki o.fl. Þá verður starfsnám og verkefna- og hópavinna mikilvægur hluti námsins.
 
Skólinn mun leggja áherslu á vendinám sem hefur verið stór hluti af starfi Keilis á undanförnum árum. Í náminu verða því hvorki hefðbundnar kennslustofur né hefðbundin stundatafla heldur munu nemendur sinna námi sínu og verkefnum í skólanum þar sem kennarar verða til staðar og leiðbeina þeim. Lögð verður áhersla á nýstárlega nálgun í kennsluaðferðum og við námsmat. Til dæmis mun skólinn byrja seinna á daginn en aðrir framhaldsskólar, nemendur munu nýta snjalltæki í stað skólabóka og stefnt verður á afnám hefðbundinna prófa, þar sem stuðst verður í staðinn við meðal annars símat, nemendaverkefni og jafningjamat.
 
Public deli
Public deli