Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Háaleitisskóli tekur þátt í Þróunarverkefni
Mánudagur 13. ágúst 2018 kl. 11:13

Háaleitisskóli tekur þátt í Þróunarverkefni

Fræðslusvið Reykjanesbæjar, fræðslu- og frístundaþjónusta Hafnarfjarðar og skólaþjónusta Árborgar hafa átt í samstarfi um þróunarverkefni sem gengur meðal annars út á það að styrkja nám, líðan og félagslega stöðu nemenda af erlendum uppruna í skólum. Markmið þess er að styðja skólana í að staðsetja nemendur af erlendum uppruna hvað varðar fyrri þekkingu og reynslu. Niðurstöður matsins mun auðvelda skólunum að skipuleggja nám nemenda út frá styrkleikum þeirra og þörfum.

Eftirtaldir skipa undirbúnings- og faghóp: Aneta Figlarska, Hrund Harðardóttir og Þorsteinn Hjartarson frá Árborg, Fanney Dóróthe Halldórsdóttir, Kristrún Sigurjónsdóttir og Þórdís Helga Ólafsdóttir frá Hafnarfirði og Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, Helgi Arnarson og Kolfinna Njálsdóttir frá Reykjanesbæ. Halldóra Fríða mun stýra verkefninu.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Háaleitisskóli í Reykjanesbæ, Lækjarskóli í Hafnarfirði og Vallaskóli í Árborg munu vera þátttökuskólar frá byrjun.

Verkefnið hlaut nýlega styrk úr Sprotasjóði að upphæð 2.350.000 kr. Samkomulag hefur verið gert við Gyðu Arnmundsdóttur fyrrum deildarstjóra skólaþjónustu Reykjanesbæjar um að þýða stöðumat sem hefur verið notað með góðum árangri í Svíþjóð. Stefnt er að því í framhaldi að halda námskeið fyrir kennarateymi og starfsfólk skólaþjónustu þessara þriggja sveitafélaga í samstarfi við sænska samstarfsaðila. Á námskeiðinu verður lögð áhersla á þekkingu og færni í að leggja fyrir og nýta stöðumatið. Stefnt er að því að halda námskeiðið í janúar eða febrúar 2019. Markmiðið er ennfremur að allir skólar á landinu geti fengið fræðslufundi og kynningarefni þegar verkefnið verður tilbúið kemur fram á heimasíðu Reykjanesbæjar.