Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Grýtti áfengisflöskum í flugáhöfnina
Sunnudagur 3. desember 2017 kl. 06:00

Grýtti áfengisflöskum í flugáhöfnina

Lögregla var nýverið kvödd á vettvang við lendingu flugvélar á Keflavíkurflugvelli  eftir að drukkinn farþegi hafði grýtt áfengisflöskum í áhöfnina á leið til landsins. Vélin var frá ungverska flugfélaginu Wizz Air. Umræddur farþegi hafði verið með dónaskap og leiðindi í fluginu og drukkið sitt eigið áfengi úr plastflöskum. Þegar áhöfnin ætlaði að hafa afskipti af honum reiddist hann og kastaði flöskunum að áhafnarmeðlimunum. Lögregla ræddi við manninn og var þá úr honum allur vindur. Ekki er vitað hvort flugfélagið kærir hann fyrir athæfið.

Public deli
Public deli