Karlakórinn
Karlakórinn

Fréttir

Enn eru tveir gígar virkir í eldgosinu
VF/Ísak Finnbogason
Fimmtudagur 4. apríl 2024 kl. 15:55

Enn eru tveir gígar virkir í eldgosinu

Eldgosið við Sundhnúksgígaröðina heldur áfram og enn eru tveir gígar virkir eins og undanfarna daga. Nyrðri gígurinn er stærri og virðist megnið af hraunflæðinu koma frá honum eins og sést á eftirfarandi mynd sem tekin var í gærkvöldi, 3. apríl. Hraun rennur áfram til suðurs frá gígunum ofan á hraunbreiðu sem myndaðist fyrstu daga gossins. Í gærkvöldi voru engin greinileg merki um framrás hrauns við varnargarða norðan Grindavíkur, Suðurstrandarveg eða Melhólsnámu. Þetta kemur fram í frétt frá Veðurstofu Íslands.

Dronamynd04042024

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Loftmynd úr drónaflugi á vegum Almannavarna í gærkvöldi, 3. apríl. Myndin sýnir gígana tvo og hraunflæðið frá þeim til suðurs.

Á bylgjuvíxlmynd sem sýnir aflögun frá 18. mars til 3. apríl sést að land hefur risið um 3 cm í Svartsengi á því tímabili. Það er töluvert hægara landris en mældist fyrir þau eldgos eða kvikuhlaup sem orðið hafa á síðustu mánuðum. Út frá GPS mælingunum á sama tímabili virðist hraði landrissins hafa verið breytilegur en erfitt getur verið að meta breytingar frá degi til dags út frá þeim. Ef horft er á GPS mælingar yfir allt tímabilið sem bylgjuvíxlmyndin sýnir sést að samræmi er í niðurstöðum beggja mælinga. Landris mælist í Svartsengi á meðan eldgosinu stendur en það hefur ekki sést í þeim atburðum sem hafa orðið á síðustu mánuðum á Sundhnúksgígaröðinni. Það er vísbending um að kerfið sé opið og kvika streymi áfram af miklu dýpi undir Svartsengi og þaðan til yfirborðs í Sundhnúksgígaröðinni.

Csk_reykjanes_A33-krysuvik_20240318-20240403_unw

Bylgjuvíxlmynd sem sýnir aflögun frá 18. mars til 3. apríl. Gulur og appelsínugulur litur sýnir svæði í kringum Svartsengi þar sem landris mælist.

Áfram mælast há gildi brennisteinsdíóxíðs í kringum eldgosið

Gasmælingar sem framkvæmdar voru á þriðjudaginn síðasta, 2. apríl, áætla að um 37 – 41 kg/s af SO2 flæði úr gígunum. Áfram mælast tímabundið há gildi brennisteinsdíóxíðs í kringum eldgosið og í byggð á Reykjanesskaga. Gaslosun frá eldgosinu er líkleg til að valda mengun á Reykjanesskaganum og bendum við fólki á svæðinu að fylgjast með á loftgæði og kynna sér þar viðbrögð við loftmengun frá eldgosinu.

Veðurspá í dag (fimmtudag) er suðaustan og sunnan 8-13 m/s á gosstöðvunum og berst gasmengunin þá til norðvesturs og norðurs og gæti orðið vart við mengun í Vogum, Reykjanesbæ og Suðurnesjabæ. Austan 5-10 á morgun (föstudag) og berst mengunin þá til vesturs, m.a. yfir Svartsengi. Norðaustan 5-10 seint á morgun og berst mengunin þá til suðvesturs og mögulega yfir Grindavík um tíma. Gasdreifingarspá hér.

Gasdreifing04042024

Hættumat sem birt var 2. apríl er óbreytt og enn í gildi til 9. apríl að öllu óbreyttu.