Fréttir

Auglýst eftir styrkumsóknum í Menningarsjóð Reykjanesbæjar
Þriðjudagur 22. janúar 2019 kl. 09:06

Auglýst eftir styrkumsóknum í Menningarsjóð Reykjanesbæjar

Menningarsjóður Reykjanesbæjar hefur auglýst eftir umsóknum í tvenns konar styrki sjóðsins. Um er að ræða þjónustusamning við menningarhópa og verkefnastyrki til menningartengdra verkefna. Umsóknum þarf að skila í síðasta lagi 3. febrúar nk.
 
Ákveðnu fjármagni verður varið í þjónustusamninga við menningarhópa í bæjarfélaginu árið 2019 eins og verið hefur. Um ýmis konar þjónustu af hálfu menningarhópanna getur verið að ræða s.s. þátttöku í viðburðum, námskeiðahald o.fl. í þeim dúr gegn ákveðinni greiðslu.
 
Verkefnastyrkir til menningartengdra verkefna eru einnig til umsóknar en ákveðnu fjármagni verður varið í verkefnastyrki á árinu 2019 sem miða að því að hægt verði að fá fjármagn til einstakra menningarverkefna sem standa munu bæjarbúum til boða á árinu.
 
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024